Uppsveitadeildin
Nú fer keppnisröð Uppsveitadeild Æskunnar að hefjast.
Guðjón og Helgi ætla sér báðir að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem allir höfðu gaman af í fyrra. Fyrsta mótið er laugardagurinn 10. Mars og er þá keppt í smala. Þeir eru farnir að huga að þjálfun og er takmarkið að gera enn betur í fyrra og hafa gaman af. Vonum að sem flestir geri sér góða ferð í reiðhöllina og horfa á krakkanna okkar.
dagsskrá Uppsveitadeildarinnar: Hér
kær kveðja frá Skollagróf
Gleðileg Jól og farsælt nýtt árVið í Skollagróf viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og gott og farsæls komandi árs með þökkum fyrir liðin kynni.
Folaldasýning!Folaldasýning Hrossaræktrafélags Hrunamanna var haldin sunnudaginn 30.október síðastliðinn og fórum við með eitt hestfolald, það var hann Vinur frá Skollagróf. Móðir Vins er hún Móeiður frá Skollagróf og faðir hans er Sjór frá Ármóti sem er undan Sæ frá Bakkakoti og Gnótt frá Skollagróf. Hann Vinur okkar komst í úrslit í hesta flokki og stóð sig með mikilli prýði. Að lokum var það hann Stormur frá Hrepphólum sem stóð efstur í hestaflokknum. Af hryssunum stóð Freyja frá Þórarinsstöðum efst og er eigandi hennar hún Lilja tvíburasystir hennar Fjólu húsfreyjunnar hér á bæ. Freyja er undan Þulu frá Skollagróf sem Lilja fékk frá okkur. Til gaman má geta þá var Siggi þulur á sýningunni og var dómurunum til halds og trausts. Með góðum kveðjum úr grófinni :)
|
Fleiri greinar...
Skoðanakönnun
Gestir
Það eru 2 gestir á síðunni núna